Dagskrá vetrarins. Félag eldri borgara á Suðurnesjum var stofnað 3. mars 1991 og byggt á grunni Styrktarfélags aldraðra sem var stofnað árið 1974. Aðalhvatamaður að stofnun styrktarfélagsins var Guðrún Sigurbergsdóttir (Gunna skó). Fyrsti formaður Félags eldri borgara var Jónína Kristjánsdóttir. Félag eldri borgara á Suðurnesjum er eins og nafnið bendir til frjáls félagsskapur fólks á öllum Suðurnesjum sem er 60 ára og eldra. Félagið vinnur að hagsmunamálum eldri borgara, auk þess að standa fyrir ýmiskonar afþreyingu fyrir sína félagsmenn, svo sem félagsvist, bingó og bridge í félagsmiðstöð félagsins á Nesvöllum í Reykjanesbæ. Einnig stendur félagið fyrir ýmiskonar samkomum, leikhúsferðum og ferðum bæði innanlands og til annarra landa. Stjórn félags eldri borgara er þannig skipuð í dag. Formaður: Eyjólfur Eysteinsson Varaformaður: Jórunn Guðmundsdóttir Gjaldkeri: Árni Júlíusson Ritari: Guðlaugur Atlason Meðstjórn: Hrafnhildur Gunnarsdóttir Jón Ísleifsson Hildur Harðardóttir Varastjórn: Ólöf Ólafsdóttir Sigríður E. Jónsdóttir Elsa Eyjólfsdóttir Garðar Sigurðsson Halldór B. Halldórsson Stjórn félagsins hvetur alla Suðurnesjamenn 60 ára og eldri til að ganga í félagið. Til baka
|